Færslur

Sýnir færslur frá september, 2018

Pylsupasta

150 g pasta 3 pylsur 5 beikonræmur 1/2 hvítlauk- pipar- eða mexíkóostur 4 msk smurostur 1 og 1/2 dl mjólk 1. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka. 2. Skerið pylsurnar og beikonið í litla bita. 3. Steikið pylsurnar og beikonið á pönnu við meðalhita í 10 mínútur. 4. Skerið ostinn í bita og bætið á pönnuna ásamt mjólk og smurosti. Hrærið vel þangað til osturinn leysist upp. 5. Blandið soðna pastanu út í sósuna.

Lahmacun (tyrkneskar pizzur)

Fyrir brauðið 180 g hveiti 1 msk olía 1 dl volgt vatn 5 g ger Fyrir kjötið 1 tómatur Steinselja 200 g lambahakk 2 msk tómatmauk 1 hvítlauksrif ½ tsk chiliflögur ½ tsk cumin salt og pipar ¼ sítróna Byrjið á að stilla ofninn á 230°C og yfir- og undirhita. Setjið allt, sem fer í brauðið, í skál. Hrærið öllu vel saman og hnoðið deigið þar til úr verður slétt og fín kúla (u.þ.b. 5 mín). Látið deigið lyfta sér á hlýjum stað í 10 mínútur. Skerið niður tómatinn, saxið hvítlauksrifið og steinselju smátt. Setjið í skál ásamt lambahakkinu, tómatmauki og kryddunum. Hrærið vel. Skiptið deiginu niður í 3-4 parta og fletjið út í þunnar kökur. Setjið kökurnar á bökunarplötu og dreifið hakkblöndu yfir hverja köku. Bakið kökurnar í 8-10 mínútur. Kreystið sítrónu yfir áður en pizzan er borðuð.

Vöfflur

Mynd
3 ½ dl hveiti 2 tsk lyftiduft 2 msk sykur ¼ tsk salt ½ dl matarolía 2 egg 2 ½ dl mjólk 1 tsk vanilludropar Setjið allt í skál og hrærið saman í kekklausan jafning. Bakið í vel heitu vöfflujárni. Berið fram með t.d. sultu og rjóma.

Bananamúffur

Mynd
2 bananar 1/2 dl olía 1 dl púðursykur 1 egg 1/2 dl mjólk 1/2 tsk vanilludropar 4 dl hveiti 1/2 tsk lyftiduft 50 g súkkulaði 1/4 tsk salt Hitið ofninn í 200°C. Stappið banana og setjið í skál ásamt olíu, púðursykri, eggi, mjólk og vanilludropum. Hrærið vel saman. Bætið hveitinu, lyftiduftinu, súkkulaðinu og saltinu saman við. Hrærið saman með sleif en passið að hræra ekki of lengi. Setjið í múffuform. Bakið í miðjum ofni í 15-20 mín.

Enchiladas

Mynd
1 elduð kjúklingabringa ½ krukka salsasósa 2-3 tortillur 50 g rifinn ostur ½ dós sýrður rjómi ½ dós maísbaunir salat Stillið ofninn á 180°C og yfir- og undirhita. Rífið niður kjúklingabringuna og setjið í skál. Setjið helminginn af salsasósunni út á kjúklinginn og blandið saman. Raðið tortillunum á borðið og raðið kjúklingnum á þær í rönd á miðri tortillunni. Takið fram eldfast mót. Rúllið upp tortillunum og raðið í eldfasta mótið. Dreifið smá rifnum osti yfir tortillurnar. Setjið mótið inn í ofn og bakið tortillurnar í 15 mínútur. Berið enchiladas-ið fram með sýrðum rjóma, salsasósu, maís og salati.

Kjúklingasalat með beikoni og sweet chili

4 sneiðar beikon 1 kjúklingabringa 1 tsk kjúklingakrydd 1 msk matarolía eða smjör ½ poki blandað salat 1 rauð paprika ¼ hunangsmelóna ½ krukka fetaostur graskersfræ sósa ½ dl sweet chilisósa safi úr ½ lime Skerið beikonið í litla bita og steikið á pönnu þar til það er orðið stökkt. Geymið til hliðar. Skerið kjúklingabringuna í mjóa strimla. Kryddið kjúklinginn og steikið á pönnu þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Skerið paprikuna og melónuna í bita. Skolið blandaða salatið og setjið í stóra skál. Raðið paprikunni og melónunni ofan á og síðan kjúklingnum. Dreifið fetaosti, beikoni og graskersfræjum yfir. Blandið chilisósu og limesafa saman og dreifið yfir salatið.

Vínarbrauð

Mynd
125 g smjör, mjúkt ¾ dl sykur 1 egg ½ tsk lyftiduft 3 ½ dl hveiti ¾ dl sulta (t.d. hindberja eða jarðarberja) Stillið ofninn á 175°C. Hrærið saman smjöri og sykri Bætið eggi og lyftidufti út í og hrærið deigið slétt. Bætið loks hveiti saman við og hrærið þar til deigið er orðið slétt og fínt. Skiptið deiginu í þrjá hluta og rúllið hverjum hluta í lengju á bökunarplötu. Mótið holu eftir miðri lengjunni og setjið sultu þar í. Bakið vínarbrauðið í 15 mínútur. Skerið lengjurnar áður en þær kólna.

Fiskitaco

Mynd
½ mangó ⅙ gúrka ½ tómatur ¼ lime 300 g fiskur, í bitum 1 tsk tacokrydd 3 tortillur Berið t.d. fram með: ferskum kóríander, maís, sýrðum rjóma og salsasósu Stillið ofninn á 175°C. Setjið tacokrydd á fiskinn og setjið hann í eldfast mót. Stingið fiskinum inn í ofn og bakið hann í 15 mínútur. Skerið mangó, gúrku og tómat í litla bita og setjið í skál. Kreistið limeið yfir mangósalatið og hrærið saman. Hitið tortillurnar á pönnu eða mýkið í örbylgjuofni. Takið fiskinn út úr ofninum og setjið hann á tortillur ásamt mangósalsa og meðlæti.