Vínarbrauð

125 g smjör, mjúkt
¾ dl sykur
1 egg
½ tsk lyftiduft
3 ½ dl hveiti
¾ dl sulta (t.d. hindberja eða jarðarberja)
- Stillið ofninn á 175°C.
- Hrærið saman smjöri og sykri
- Bætið eggi og lyftidufti út í og hrærið deigið slétt.
- Bætið loks hveiti saman við og hrærið þar til deigið er orðið slétt og fínt.
- Skiptið deiginu í þrjá hluta og rúllið hverjum hluta í lengju á bökunarplötu.
- Mótið holu eftir miðri lengjunni og setjið sultu þar í.
- Bakið vínarbrauðið í 15 mínútur.
- Skerið lengjurnar áður en þær kólna.
Ummæli
Skrifa ummæli