Pylsupasta

150 g pasta
3 pylsur
5 beikonræmur
1/2 hvítlauk- pipar- eða mexíkóostur
4 msk smurostur
1 og 1/2 dl mjólk

1. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
2. Skerið pylsurnar og beikonið í litla bita.
3. Steikið pylsurnar og beikonið á pönnu við meðalhita í 10 mínútur.
4. Skerið ostinn í bita og bætið á pönnuna ásamt mjólk og smurosti. Hrærið vel þangað til osturinn leysist upp.
5. Blandið soðna pastanu út í sósuna.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Formkaka með súkkulaði

Fátækur riddari

Tælenskur pottréttur