Fiskitaco

Myndaniðurstaða fyrir taco watercolor
½ mangó
⅙ gúrka
½ tómatur
¼ lime
300 g fiskur, í bitum
1 tsk tacokrydd
3 tortillur
Berið t.d. fram með:
ferskum kóríander, maís, sýrðum rjóma og salsasósu


  1. Stillið ofninn á 175°C.
  2. Setjið tacokrydd á fiskinn og setjið hann í eldfast mót.
  3. Stingið fiskinum inn í ofn og bakið hann í 15 mínútur.
  4. Skerið mangó, gúrku og tómat í litla bita og setjið í skál.
  5. Kreistið limeið yfir mangósalatið og hrærið saman.
  6. Hitið tortillurnar á pönnu eða mýkið í örbylgjuofni.
  7. Takið fiskinn út úr ofninum og setjið hann á tortillur ásamt mangósalsa og meðlæti.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Formkaka með súkkulaði

Fátækur riddari

Tælenskur pottréttur