Bananamúffur

2 bananar
1/2 dl olía
1 dl púðursykur
1 egg
1/2 dl mjólk
1/2 tsk vanilludropar
4 dl hveiti
1/2 tsk lyftiduft
50 g súkkulaði
1/4 tsk salt
- Hitið ofninn í 200°C.
- Stappið banana og setjið í skál ásamt olíu, púðursykri, eggi, mjólk og vanilludropum. Hrærið vel saman.
- Bætið hveitinu, lyftiduftinu, súkkulaðinu og saltinu saman við. Hrærið saman með sleif en passið að hræra ekki of lengi.
- Setjið í múffuform.
- Bakið í miðjum ofni í 15-20 mín.
Ummæli
Skrifa ummæli