Lahmacun (tyrkneskar pizzur)

Fyrir brauðið
180 g hveiti
1 msk olía
1 dl volgt vatn
5 g ger

Fyrir kjötið
1 tómatur
Steinselja
200 g lambahakk
2 msk tómatmauk
1 hvítlauksrif
½ tsk chiliflögur
½ tsk cumin
salt og pipar
¼ sítróna

  1. Byrjið á að stilla ofninn á 230°C og yfir- og undirhita.
  2. Setjið allt, sem fer í brauðið, í skál.
  3. Hrærið öllu vel saman og hnoðið deigið þar til úr verður slétt og fín kúla (u.þ.b. 5 mín).
  4. Látið deigið lyfta sér á hlýjum stað í 10 mínútur.
  5. Skerið niður tómatinn, saxið hvítlauksrifið og steinselju smátt. Setjið í skál ásamt lambahakkinu, tómatmauki og kryddunum. Hrærið vel.
  6. Skiptið deiginu niður í 3-4 parta og fletjið út í þunnar kökur.
  7. Setjið kökurnar á bökunarplötu og dreifið hakkblöndu yfir hverja köku.
  8. Bakið kökurnar í 8-10 mínútur.
  9. Kreystið sítrónu yfir áður en pizzan er borðuð.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Formkaka með súkkulaði

Fátækur riddari

Tælenskur pottréttur