Enchiladas
1 elduð kjúklingabringa
½ krukka salsasósa
2-3 tortillur
50 g rifinn ostur
½ dós sýrður rjómi
½ dós maísbaunir
salat
- Stillið ofninn á 180°C og yfir- og undirhita.
- Rífið niður kjúklingabringuna og setjið í skál.
- Setjið helminginn af salsasósunni út á kjúklinginn og blandið saman.
- Raðið tortillunum á borðið og raðið kjúklingnum á þær í rönd á miðri tortillunni.
- Takið fram eldfast mót.
- Rúllið upp tortillunum og raðið í eldfasta mótið.
- Dreifið smá rifnum osti yfir tortillurnar.
- Setjið mótið inn í ofn og bakið tortillurnar í 15 mínútur.
- Berið enchiladas-ið fram með sýrðum rjóma, salsasósu, maís og salati.
Ummæli
Skrifa ummæli