Færslur

Sýnir færslur frá febrúar, 2019

Kókoskúlur

Kókoskúlur 100 g smjör 1 dl sykur 3 dl haframjöl 2 msk kakó 1 tsk vanilludropar Kókosmjöl Öllu hráefninu er blandað saman og hnoðað í skál. Síðan eru mótaðar litlar kúlur, sem að lokum er velt upp úr kókosmjöli.

Formkaka með súkkulaði

Formkaka með súkkulaði 125 g smjör 125 g sykur 1 egg 250 g hveiti 2 tsk lyftiduft 1 ½ dl mjólk 1 dl súkkulaðibitar ½ tsk sítrónudropar Stillið ofninn á 175°C og yfir- og undirhita. Hrærið smjör og sykur saman með þeytara. Brjótið eggið í glas og blandið svo út í deigið. Setjið hveiti, lyftiduft, sítrónudropa og mjólk í skálina og blandið saman með sleif. Passið að hræra sem minnst eftir að hveitið er komið í skálina. Skerið niður súkkulaði og setjið í deigið. Blandið varlega saman. Smyrjið form og fyllið það að ⅔. Setjið formið á grind neðarlega í ofninn og bakið í 25-30 mínútur.

Blondie með hvítu súkkulaði

Blondie með hvítu súkkulaði 110 g smjör 170 g púðursykur 1 egg 1 tsk vanilludropar 140 g hveiti ½ tsk salt 100 g hvítt súkkulaði Byrjið á að stilla ofninn á 180°C og yfir- og undirhita. Bræðið smjörið í potti. Setjið púðursykur í skál og blandið bráðna smjörinu saman við. Bætið svo eggi og vanilludropum saman við. Hrærið. Setjið hveiti og salt í skálina og hrærið saman. Saxið hvítt súkkulaði gróft niður og bætið út í deigið. Smyrjið form eða eldfast mót með smjöri og hellið deiginu í það. Bakið í 25-30 mínútur. Skerið í bita áður en kakan er borin fram.

Shawarma, pítubrauð og tzatziki

Kjúklingashawarma fyrir 2 2 kjúklingabringur Safi úr ¼ úr sítrónu ½ dl olía 2 hvítlauksrif ½ tsk salt 1 tsk svartur pipar 1 tsk cumin 1 tsk paprika 1 ml túrmerik 1 ml kanill 1 ml chiliflögur Skerið kjúklingabringurnar í litla bita og setjið í skál. Setjið sítrónusafa, olíu og kryddin út í skálina og hrærið öllu vel saman. Leyfið kjúklingnum að marínerast í nokkrar mínútur ef það er nægur tími. Hitið pönnu á miðlungshita og steikið kjúklinginn þar til hann er eldaður í gegn. Berið fram með pítubrauðum, grænmeti og sósu. Tzatziki 100 g grísk jógúrt ⅕ úr gúrku 1 hvítlauksrif 1 ml salt Rífið niður gúrkuna með rifjárni, pressið hvítlaukinn og blandið öllu saman í skál. Pítubrauð 200 g hveiti 1 tsk salt 1 msk matarolía 1 tsk þurrger 1 msk sykur 3 dl volgt vatn Stillið ofninn á 200°C og yfir- og undirhita. Setjið allt saman í skál og hnoðið á borði í 8 mínútur (alls ekki styttra). Setjið deigið í skál og s...

Pad thai

Pad thai 100 g hrísgrjónanúðlur 1 kjúklingabringa 1 msk matarolía 2 msk púðursykur 2 msk sojasósa 1 msk hrísgrjónaedik ½ msk ferskur limesafi ½ msk fiskisósa ½ rauð paprika 2 gulrætur 1 hvítlauksrif 2 vorlaukar 1 egg ¾ dl ferskt kóríander Hrærið saman púðursykri, sojasósu, hrísgrjónaediki, limesafa og fiskisósu. Setjið til hliðar. Skerið kjúklingabringuna í litla bita og skerið paprikuna og gulræturnar í strimla á stærð við eldspýtu. Saxið hvítlaukinn og vorlaukinn smátt. Hitið olíu á pönnu yfir miðlungsháum hita og steikið kjúklinginn þar til hann er fulleldaður. Takið kjúklinginn af pönnunni og geymið til hliðar. Setjið núðlur í pott og sjóðið þær eftir leiðbeiningum á pakka. Setjið papriku og gulrætur á pönnuna og steikið í 1-2 mínútur, Bætið svo hvítlauk, vorlauk og baunaspírum á pönnuna og steikið í 1-2 mínútur til viðbótar. Ýtið grænmetinu til hliðar á pönnunni og brjótið eggin í miðjuna. Hrærið í eggjunum þar til þau eru fullelduð. Bætið kjú...

Cinnabons með kremi

Cinnabons-kanilsnúðar með kremi snúðar 2 ¼ tsk ger 2 ⅓ dl mjólk 1 ⅕ dl sykur 75 g mjúkt smjör 1 tsk salt 9 ½ dl hveiti fylling 2 dl púðursykur 2 ½ msk kanill 75 g mjúkt smjör rjómaostkrem 90 g mjúkt smjör 3 ½ dl flórsykur 4 msk rjómaostur ½ tsk vanilludropar ⅛ tsk salt Stillið ofninn á 175°C og yfir- og undirhita. Hitið mjólkina rólega í potti og setjið svo í skál ásamt gerinu. Leyfið gerinu að leysast upp í mjólkinni í um 5 mínútur. Bætið við sykri, smjöri, salti, eggjum og hveiti og blandið öllu vel saman. Hnoðið deigið á borði í 3-5 mínútur. Útbúið fyllinguna með því að blanda saman púðursykri og kanil. Fletjið deigið út í kassa sem er aðeins um 1 sm að þykkt og smyrjið smjörinu á deigið og dreifið svo fyllingunni yfir. Rúllið deiginu varlega upp í lengju og skerið í 3-4 sm breiða bita (ættu að vera 12 snúðar). Setjið snúðana í eldfast mót sem hefur verið smurt. Leyfið snúðunum að lyfta sér í 20-30 mínútur áður en þeim e...

Harðir kanilsnúðar

Mynd
4 dl hveiti 100 g smjör 2 msk sykur 1 egg ½ dl mjólk Smjör, bráðið 2 msk sykur 1 tsk kanill Stillið ofninn á 200°C og yfir- og undirhita. Setjið hveiti og sykur í skál og skerið smjörið í litla bita og bætið út í. Hnoðið deigið saman með höndum þar til smjörið hefur blandast við hveitið. Setjið eggið og mjólkina út í og hrærið öllu saman í sprungulaust deig. Ekki hnoða lengur en þarf. Fletjið deigið út með kökukefli í aflanga köku. Penslið með bráðnu smjöri og stráið kanilsykri yfir. Rúllið kökunni upp og skerið svo í sneiðar. Raðið sneiðunum á bökunarplötu með bökunarpappír á. Bakið þar til snúðarnir eru ljósbrúnir.