Shawarma, pítubrauð og tzatziki

Kjúklingashawarma
fyrir 2

2 kjúklingabringur
Safi úr ¼ úr sítrónu
½ dl olía
2 hvítlauksrif
½ tsk salt
1 tsk svartur pipar
1 tsk cumin
1 tsk paprika
1 ml túrmerik
1 ml kanill
1 ml chiliflögur

  1. Skerið kjúklingabringurnar í litla bita og setjið í skál.
  2. Setjið sítrónusafa, olíu og kryddin út í skálina og hrærið öllu vel saman.
  3. Leyfið kjúklingnum að marínerast í nokkrar mínútur ef það er nægur tími.
  4. Hitið pönnu á miðlungshita og steikið kjúklinginn þar til hann er eldaður í gegn.
  5. Berið fram með pítubrauðum, grænmeti og sósu.

Tzatziki

100 g grísk jógúrt
⅕ úr gúrku
1 hvítlauksrif
1 ml salt

  1. Rífið niður gúrkuna með rifjárni, pressið hvítlaukinn og blandið öllu saman í skál.


Pítubrauð

200 g hveiti
1 tsk salt
1 msk matarolía
1 tsk þurrger
1 msk sykur
3 dl volgt vatn

  1. Stillið ofninn á 200°C og yfir- og undirhita.
  2. Setjið allt saman í skál og hnoðið á borði í 8 mínútur (alls ekki styttra).
  3. Setjið deigið í skál og setjið skálina í heitt vatnsbað. Látið deigið hefast í 30-40 mínútur.
  4. Skiptið deiginu í fjóra bita og fletjið þá út í kringlóttar kökur.
  5. Raðið kökunum á pappírsklædda bökunarplötu og setjið inn í ofn. Bakið í 5-7 mínútur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Formkaka með súkkulaði

Fátækur riddari

Tælenskur pottréttur