Pad thai

Pad thai

100 g hrísgrjónanúðlur
1 kjúklingabringa
1 msk matarolía
2 msk púðursykur
2 msk sojasósa
1 msk hrísgrjónaedik
½ msk ferskur limesafi
½ msk fiskisósa
½ rauð paprika
2 gulrætur
1 hvítlauksrif
2 vorlaukar
1 egg
¾ dl ferskt kóríander

  1. Hrærið saman púðursykri, sojasósu, hrísgrjónaediki, limesafa og fiskisósu. Setjið til hliðar.
  2. Skerið kjúklingabringuna í litla bita og skerið paprikuna og gulræturnar í strimla á stærð við eldspýtu.
  3. Saxið hvítlaukinn og vorlaukinn smátt.
  4. Hitið olíu á pönnu yfir miðlungsháum hita og steikið kjúklinginn þar til hann er fulleldaður.
  5. Takið kjúklinginn af pönnunni og geymið til hliðar.
  6. Setjið núðlur í pott og sjóðið þær eftir leiðbeiningum á pakka.
  7. Setjið papriku og gulrætur á pönnuna og steikið í 1-2 mínútur,
  8. Bætið svo hvítlauk, vorlauk og baunaspírum á pönnuna og steikið í 1-2 mínútur til viðbótar.
  9. Ýtið grænmetinu til hliðar á pönnunni og brjótið eggin í miðjuna.
  10. Hrærið í eggjunum þar til þau eru fullelduð.
  11. Bætið kjúklingi, núðlum og sósu á pönnuna og blandið öllu vel saman. Steikið saman í 1-2 mínútur.
  12. Stráið fersku kóriander yfir og berið fram.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Formkaka með súkkulaði

Fátækur riddari

Tælenskur pottréttur