Harðir kanilsnúðar

4 dl hveiti
100 g smjör
2 msk sykur
1 egg
½ dl mjólk
Smjör, bráðið
2 msk sykur
1 tsk kanill
- Stillið ofninn á 200°C og yfir- og undirhita.
- Setjið hveiti og sykur í skál og skerið smjörið í litla bita og bætið út í.
- Hnoðið deigið saman með höndum þar til smjörið hefur blandast við hveitið.
- Setjið eggið og mjólkina út í og hrærið öllu saman í sprungulaust deig. Ekki hnoða lengur en þarf.
- Fletjið deigið út með kökukefli í aflanga köku.
- Penslið með bráðnu smjöri og stráið kanilsykri yfir.
- Rúllið kökunni upp og skerið svo í sneiðar.
- Raðið sneiðunum á bökunarplötu með bökunarpappír á.
- Bakið þar til snúðarnir eru ljósbrúnir.
Ummæli
Skrifa ummæli