Blondie með hvítu súkkulaði
Blondie með hvítu súkkulaði
110 g smjör
170 g púðursykur
1 egg
1 tsk vanilludropar
140 g hveiti
½ tsk salt
100 g hvítt súkkulaði
- Byrjið á að stilla ofninn á 180°C og yfir- og undirhita.
- Bræðið smjörið í potti.
- Setjið púðursykur í skál og blandið bráðna smjörinu saman við.
- Bætið svo eggi og vanilludropum saman við. Hrærið.
- Setjið hveiti og salt í skálina og hrærið saman.
- Saxið hvítt súkkulaði gróft niður og bætið út í deigið.
- Smyrjið form eða eldfast mót með smjöri og hellið deiginu í það.
- Bakið í 25-30 mínútur. Skerið í bita áður en kakan er borin fram.
Ummæli
Skrifa ummæli