Cinnabons með kremi

Cinnabons-kanilsnúðar með kremi

snúðar
2 ¼ tsk ger
2 ⅓ dl mjólk
1 ⅕ dl sykur
75 g mjúkt smjör
1 tsk salt
9 ½ dl hveiti

fylling
2 dl púðursykur
2 ½ msk kanill
75 g mjúkt smjör

rjómaostkrem
90 g mjúkt smjör
3 ½ dl flórsykur
4 msk rjómaostur
½ tsk vanilludropar
⅛ tsk salt

  1. Stillið ofninn á 175°C og yfir- og undirhita.
  2. Hitið mjólkina rólega í potti og setjið svo í skál ásamt gerinu. Leyfið gerinu að leysast upp í mjólkinni í um 5 mínútur.
  3. Bætið við sykri, smjöri, salti, eggjum og hveiti og blandið öllu vel saman.
  4. Hnoðið deigið á borði í 3-5 mínútur.
  5. Útbúið fyllinguna með því að blanda saman púðursykri og kanil.
  6. Fletjið deigið út í kassa sem er aðeins um 1 sm að þykkt og smyrjið smjörinu á deigið og dreifið svo fyllingunni yfir.
  7. Rúllið deiginu varlega upp í lengju og skerið í 3-4 sm breiða bita (ættu að vera 12 snúðar).
  8. Setjið snúðana í eldfast mót sem hefur verið smurt. Leyfið snúðunum að lyfta sér í 20-30 mínútur áður en þeim er stungið inn í ofn í 20 mínútur.
  9. Á meðan snúðarnir bakast er kremið útbúið með því að hræra öllu, sem á að fara í kremið, saman með handþeytara.
  10. Smyrjið snúðana með kreminu þegar þeir hafa kólnað örlítið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Formkaka með súkkulaði

Fátækur riddari

Tælenskur pottréttur