Formkaka með súkkulaði
Formkaka með súkkulaði
125 g smjör
125 g sykur
1 egg
250 g hveiti
2 tsk lyftiduft
1 ½ dl mjólk
1 dl súkkulaðibitar
½ tsk sítrónudropar
- Stillið ofninn á 175°C og yfir- og undirhita.
- Hrærið smjör og sykur saman með þeytara.
- Brjótið eggið í glas og blandið svo út í deigið.
- Setjið hveiti, lyftiduft, sítrónudropa og mjólk í skálina og blandið saman með sleif. Passið að hræra sem minnst eftir að hveitið er komið í skálina.
- Skerið niður súkkulaði og setjið í deigið. Blandið varlega saman.
- Smyrjið form og fyllið það að ⅔.
- Setjið formið á grind neðarlega í ofninn og bakið í 25-30 mínútur.
Ummæli
Skrifa ummæli