Færslur

Sýnir færslur frá október, 2018

Mexíkóskt lasagne og guacamole

Mynd
Mexíkóskt lasagna u.þ.b. 5-6 tortillakökur ½ laukur 1 msk olía 300 g hakk 1 tsk tacokrydd 1 lítil krukka af salsasósu 50 g rifinn ostur Sýrður rjómi, guacamole og tortillaflögur til að bera fram með Byrjið á að stilla ofninn á 180°C og yfir- og undirhita. Skerið laukinn í litla bita og steikið upp úr olíu á meðalheitri pönnu. Setjið hakkið út á þegar laukurinn er orðinn mjúkur. Kryddið hakkið með tacokryddi og eldið í gegn. Setjið salsasósuna út á hakkið og blandið vel saman. Takið fram eldfast mót og setjið eitt lag af hakki í botninn. Setjið svo tortillur og hakk til skiptis í mótið en endið á hakki. Setjið rifna ostinn efst og eldið lasagnað í 15-20 mínútur í ofni. Guacamole 1 avókadó 1/2 tómatur 1/2 hvítlauksrif 1/8 rauðlaukur 1/4 chili ½ lime Ferskt kóríander ¼ tsk salt Skerið tómatinn í litla bita og saxið hvítlaukinn og laukinn. Setjið í skál. Fræhreinsið chiliið og skerið í litla bita. Setjið í skálina...

Amerískar smákökur

Mynd
180 g mjúkt smjörlíki 3 ½ dl hveiti 2 dl súkkulaði 1 dl púðursykur 1 dl sykur ½ tsk matarsódi ½ tsk vanilludropar 1 egg ½ tsk salt Stillið ofninn á 180°C og yfir- og undirhita. Mælið öll hráefnin í skál. Blandið með sleif. Búið til kúlur úr deiginu með skeiðum eða höndunum. Raðið á bökunarplötu og bakið kökurnar í 8-10 mínútur.

Skonsur

2 ¼ dl hveiti 2 msk sykur 1 tsk lyftiduft ¼ tsk salt 1 egg 1 msk olía 1 ½ dl mjólk Setjið allt í skál og hrærið kekklaust. Steikið skonsurnar á meðalháum hita á pönnu. Notið smjör ef það þarf. Þegar það fara að myndast holur í deigið er þeim snúið við með spaða. Berið skonsurnar fram með góðu áleggi.

Lavakaka

Mynd
85 g suðusúkkulaði 60 g smjör 20 g hveiti 30 g flórsykur 1 egg 1 eggjarauða Stillið ofninn á 220°C og yfir- og undirhita. Smyrjið form með smjöri og dustið með kakói. Bræðið smjör og súkkulaði í potti. Setjið þurrefnin í skál og hellið smjörinu og súkkulaðinu yfir. Blandið egginu og eggjarauðinni saman við í kekklaust deig. Skiptið deiginu á milli tveggja lítilla móta. Bakið kökurnar í 10-12 mínútur.

Brúnkaka

Fyrir 3 125 g smjör, mjúkt 2 dl púðursykur 1 egg 3 ½ dl hveiti ½ tsk matarsódi 1 tsk negull 1 tsk kanill 1 msk kakó 1 ½ dl súrmjólk ½-1 dl rúsínur Stillið ofninn á 175°C og undirhita. Þeytið saman smjör og sykur í 3-5 mínútur, þar til það er ljóst og létt. Brjótið eggið í glas eða bolla og setjið út í skálina. Hrærið vel saman. Sigtið hveiti, matarsóda, kryddið og kakó út í skálina en ekki hræra þessu saman strax. Setjið súrmjólkina út í skálina og hrærið öllu saman. Passið að hræra ekki of mikið, þá verður kakan þurr og seig. Loks er rúsínum blandað saman við. Smyrjið þrjú formkökuform og hellið deiginu í þau. Bakið kökurnar í 20-30 mínútur.