Mexíkóskt lasagne og guacamole

Myndaniðurstaða fyrir avocado watercolor
Mexíkóskt lasagna

u.þ.b. 5-6 tortillakökur
½ laukur
1 msk olía
300 g hakk
1 tsk tacokrydd
1 lítil krukka af salsasósu
50 g rifinn ostur
Sýrður rjómi, guacamole og tortillaflögur til að bera fram með


  1. Byrjið á að stilla ofninn á 180°C og yfir- og undirhita.
  2. Skerið laukinn í litla bita og steikið upp úr olíu á meðalheitri pönnu.
  3. Setjið hakkið út á þegar laukurinn er orðinn mjúkur.
  4. Kryddið hakkið með tacokryddi og eldið í gegn.
  5. Setjið salsasósuna út á hakkið og blandið vel saman.
  6. Takið fram eldfast mót og setjið eitt lag af hakki í botninn.
  7. Setjið svo tortillur og hakk til skiptis í mótið en endið á hakki.
  8. Setjið rifna ostinn efst og eldið lasagnað í 15-20 mínútur í ofni.


Guacamole


1 avókadó
1/2 tómatur
1/2 hvítlauksrif
1/8 rauðlaukur
1/4 chili
½ lime
Ferskt kóríander
¼ tsk salt

  1. Skerið tómatinn í litla bita og saxið hvítlaukinn og laukinn. Setjið í skál.
  2. Fræhreinsið chiliið og skerið í litla bita. Setjið í skálina.
  3. Skerið avókadóið í tvennt og takið steininn úr. Skafið avókadóið ofan í skálina.
  4. Kreistið limeið út á og saltið. Hrærið í skálinni.
  5. Saxið niður kóríander og dreifið yfir guacamole-ið.
  6. Berið fram með mexíkósku lasagne eða einfaldlega tortillaflögum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Formkaka með súkkulaði

Fátækur riddari

Tælenskur pottréttur