Skonsur
2 ¼ dl hveiti
2 msk sykur
1 tsk lyftiduft
¼ tsk salt
1 egg
1 msk olía
1 ½ dl mjólk
- Setjið allt í skál og hrærið kekklaust.
- Steikið skonsurnar á meðalháum hita á pönnu. Notið smjör ef það þarf.
- Þegar það fara að myndast holur í deigið er þeim snúið við með spaða.
- Berið skonsurnar fram með góðu áleggi.
Ummæli
Skrifa ummæli