Brúnkaka

Fyrir 3

125 g smjör, mjúkt
2 dl púðursykur
1 egg
3 ½ dl hveiti
½ tsk matarsódi
1 tsk negull
1 tsk kanill
1 msk kakó
1 ½ dl súrmjólk
½-1 dl rúsínur

  1. Stillið ofninn á 175°C og undirhita.
  2. Þeytið saman smjör og sykur í 3-5 mínútur, þar til það er ljóst og létt.
  3. Brjótið eggið í glas eða bolla og setjið út í skálina. Hrærið vel saman.
  4. Sigtið hveiti, matarsóda, kryddið og kakó út í skálina en ekki hræra þessu saman strax.
  5. Setjið súrmjólkina út í skálina og hrærið öllu saman. Passið að hræra ekki of mikið, þá verður kakan þurr og seig.
  6. Loks er rúsínum blandað saman við.
  7. Smyrjið þrjú formkökuform og hellið deiginu í þau.
  8. Bakið kökurnar í 20-30 mínútur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Formkaka með súkkulaði

Fátækur riddari

Tælenskur pottréttur