Tælenskur pottréttur
fyrir 2-3
½ laukur
1 hvítlauksrif
1 gulrót
½ dós babymaís eða bambus
½ græn paprika
1 msk matarolía
200 g svínakjöt
1 tsk rautt karrýmauk
1 dós kókosmjólk
1 tsk sojasósa
4-5 dl vatn
2 dl hrísgrjón
½ tsk salt
- Setjið hrísgrjónin í pott ásamt vatni og salti og sjóðið þau í 20-40 mínútur (fer eftir því hvort hrísgrjónin eru brún eða hvít) á meðan rétturinn er eldaður.
- Saxið laukinn og hvítlaukinn.
- Skerið gulrótina í langa mjóa stafi og babymaísinn í tvennt langsum.
- Takið fræin úr paprikunni og skerið hana í mjóa strimla.
- Skerið svínakjötið í strimla.
- Setjið 1 msk af matarolíu í stóran pott og stillið helluna á meðalháan hita.
- Steikið laukinn og hvítlaukinn í pottinum í um 2 mínútur.
- Setjið svínakjötið út á pönnuna og steikið það þar til það er byrjað að brúnast (u.þ.b. 5 mín).
- Bætið karrýmaukinu út í pottinn og hrærið í lauknum.
- Setjið kókosmjólkina út í pottinn.
- Leyfið kókosmjólkinni að sjóða í um 5 mínútur áður en grænmetið er sett út í.
- Hrærið vel og setjið sojasósuna út í og leyfið kjötinu að eldast í gegn.
- Smakkið pottréttinn til þegar svínakjötið er orðið eldað.
Það er líka hægt að nota kjúkling í þessari uppskrift í stað svínakjöts.
Ummæli
Skrifa ummæli