Gunnhildarsúkkulaðikaka

100 g smjör
2 egg
3 dl sykur
2 dl hveiti
3 msk kakó
1 msk vanillusykur

1. Bræðið smjör í potti við lágan hita.
2. Þeytið saman egg og sykur.
3. Bætið hveiti, kakói og vanillusykri út í og hrærið saman.
4. Setjið loks smjörið út í deigið og blandið saman við.
5. Hellið deiginu í kringlótt eldfast mót eða kökuform.
6. Bakið kökuna í örbylgjuofni (ef eldfast mót er notað) á fullum styrk í 8-9 mínútur eða í ofni í 15-20 mínútur við 175°C.
7. Berið kökuna fram með kaldri mjólk og þeyttum rjóma eða ís.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Formkaka með súkkulaði

Fátækur riddari

Tælenskur pottréttur