Færslur

Sýnir færslur frá ágúst, 2018

Töfradrykkur

Mynd
(úr Gott og gaman) 2 dl sólberjaþykkni 5 dl eplasafi 8 dl vatn ísmolar 1. Mælið sólberjaþykkni, eplasafa og vatn í könnu eða stóra skál. 2. Hrærið í með sleif. 3. Setjið ísmola í könnuna. 4. Hellið í glös.

Fátækur riddari

Mynd
fyrir 2 2 brauðsneiðar 1 egg 1/2 dl mjólk Season all Smjör til steikingar Byrjið á að brjóta tvö egg í skál. Bætið mjólkinni út í og hrærið vel saman. Kryddið með smá season all og blandið saman. Veltið brauðsneiðunum upp úr eggjablöndunni. Hitið smjör á pönnu við miðlungsháan hita. Steikið brauðsneiðarnar á pönnu þar til þær eru gullinbrúnar. Berið fram með sósu, t.d. tómatsósu.

Tælenskur pottréttur

Mynd
fyrir 2-3 ½ laukur 1 hvítlauksrif 1 gulrót ½ dós babymaís eða bambus ½ græn paprika 1 msk matarolía 200 g svínakjöt 1 tsk rautt karrýmauk 1 dós kókosmjólk 1 tsk sojasósa 4-5 dl vatn 2 dl hrísgrjón ½ tsk salt Setjið hrísgrjónin í pott ásamt vatni og salti og sjóðið þau í 20-40 mínútur (fer eftir því hvort hrísgrjónin eru brún eða hvít) á meðan rétturinn er eldaður. Saxið laukinn og hvítlaukinn. Skerið gulrótina í langa mjóa stafi og babymaísinn í tvennt langsum. Takið fræin úr paprikunni og skerið hana í mjóa strimla. Skerið svínakjötið í strimla. Setjið 1 msk af matarolíu í stóran pott og stillið helluna á meðalháan hita. Steikið laukinn og hvítlaukinn í pottinum í um 2 mínútur. Setjið svínakjötið út á pönnuna og steikið það þar til það er byrjað að brúnast (u.þ.b. 5 mín). Bætið karrýmaukinu út í pottinn og hrærið í lauknum. Setjið kókosmjólkina út í pottinn. Leyfið kókosmjólkinni að sjóða í um 5 mínútur áður en grænmetið...

Gunnhildarsúkkulaðikaka

Mynd
100 g smjör 2 egg 3 dl sykur 2 dl hveiti 3 msk kakó 1 msk vanillusykur 1. Bræðið smjör í potti við lágan hita. 2. Þeytið saman egg og sykur. 3. Bætið hveiti, kakói og vanillusykri út í og hrærið saman. 4. Setjið loks smjörið út í deigið og blandið saman við. 5. Hellið deiginu í kringlótt eldfast mót eða kökuform. 6. Bakið kökuna í örbylgjuofni (ef eldfast mót er notað) á fullum styrk í 8-9 mínútur eða í ofni í 15-20 mínútur við 175°C. 7. Berið kökuna fram með kaldri mjólk og þeyttum rjóma eða ís.